Helstu áhugamálin mín innan líkamsræktar eru vaxtarrækt, kraftlyftingar og næring. Ég hef í gegnum tíðina stundað vaxtarrækt og keppt tvisvar í þeirri grein (2017 og 2019). Einnig hef ég keppt í kraftlyftingum.
Hentar þeim sem vilja ná alvöru árangi og vilja fá mikið aðhald frá þjálfara
Fyrir þá sem vilja bæta afkastagetuna og læra á næringargildi
Hentar þeim sem vilja æfa með þjálfara í sal og vilja sem allra mest út úr þjálfuninni
Var í fjarþjálfun í 8/9 mánuði og tók bulk og cutt sem var geggjuð reynsla og náði mjög miklum árangri eins og varð miklu sterkari og bætti miklum vöðvamassa og það hjálpaði mikið að vera með þjálfara í þessu. Lærði mjög mikið eins og hvernig næring skiptir svo miklu máli, og bara hvernig maður á að gera allar æfingar réttar. Mikael er frábær þjálfari og er með svör við öllu !! Mæli mikið með honum! Hjálpaði mér svo mikið og varð svo miklu sterkari því prógrömminn sem hann gaf mér gerðu svo mikið í þeim tilgangi! Öll æfingarplönin vel sett upp og mjög vel útskýrt. Appið er alveg geggjað og mjög þæginlegt að nota sem hjálpaði líka mjög mikið!
Hreint mataræði og skemmtilegar æfingar voru hlutir sem ég hélt að væri ómögulegt að ná. Eftir að ég byrjaði í þjálfun hjá Mikael var ég fljótur að átta mig á því að því væri létt að ná með smá hjálp. Styrkurinn rauk upp og fann ég mun líkamlega og andlega í hvert skipti sem ég mætti í ræktina undir fjarþálfun Mikaels. Hef aldrei verið jafn sáttur með sjálfan mig og þegar ég var í fjarþjálfun hjá honum, mæli virkilega með.
Þjálfuninn var virkilega skemmtileg og fræðandi, lærði helling bara af þessum eina mánuði til dæmis allskonar æfingar og einnig hversu mikið næringargildi skipta miklu máli. Viðhorfið var mjög opið og gott og var þannig allan tímann. Mjög góður þjálfari allt mjög vel útskýrt og með flottum vídeóum ef mér fannst vanta einhverjar æfingar þá var því reddað fljótt og auðvelt að fá svör við spurningum
Mér fannst ég öðlast mjög mikinn og góðan árangur frá þjálfuninni og gerði það að verkum að ég lyfti þyngdum sem ég hafði ekki haldið að ég gæti. Ég lærði mjög mikið um næringu og að það er hægt að borða bæði hollt og gott á sama tíma. Ég kom til Mikka í þjálfun til þess að hækka tölurnar og það gerðist svo sannarlega, 10-30kg bætingar í hverri lyftu fyrir sig. Hann útskýrir allar æfingar mjög vel og í miklum details og appið er mjög skipulagt og þæginlegt að vinna með. (Stundum sma vesen að senda myndbönd) en hef þá bara reddað því í gegnum instagram, líka alltaf nokkuð fljótur að svara! Umfram allt fann ég mjög mikinn mun á bæði orku og styrk á þessum 3 mánuðum sem ég var í þjálfun og var þetta góður undirbúningur fyrir áframhald í kraftlyftingum
Mikael er mjög skemmtilegur þjálfari og manneskja og gaman að tala við hann sem gerði þjálfunina skemmtilegri þar sem þetta var ekki einungis að mæta í ræktina og gera æfingar heldur var þetta líka bara eins og að fara í ræktina með vin. Hann var viðstaddur á meðan æfingunni stóð yfir og fylgdist með og leiðrétti formið mitt í ákveðnum æfingum þar sem þurfti. Aðgengileikinn og auka aðstoðin sem Mikael veitti er ég mjög sáttur með, það var nánast alltaf hægt að ná í hann ef mig vantaði aðstoð eða hafði einhverskonar spurningar hvort sem það var varðandi ræktina eða eitthvað tengt því svaraði hann á skömmum tíma. Áður en ég byrjaði hjá honum voru möxin mín í stóru lyftunum (bekkur, hnébeygja og réttstöðulyfta) búin að vera tiltölulega föst á sama stað í langan tíma en eftir þessa 2 mánuði bætti ég mig heilan helling eða 55 kg samtals sem ég var alls ekki að búast við og langt yfir væntingum. Ég er viss um að þessar tölur munu bara hækka í framtíðinni ef ég mun halda áfram að nota ábendingarnar og trikkin sem að Mikael kenndi mér í þjálfuninni.
þjálfunin var heilt yfir mjög vel skipulögð og flott, ekkert sem þarf að setja út á. Það sem ég lærði var það hvað næring er lykilatriði þegar kemur að íþrótt, ótrúlegt hvað ég fann mikinn mun um leið og ég byrjaði að breyta matarræðinu. Allt var mjög vel útskýrt og punktarnir sem þú gafst mér voru mjög skýrir og átti allt vel við. Appið var smá flókið í byrjun, en maður lærði á það strax, þannig heilt yfir var allt geðveikt! Mér fannst þetta allt ganga rosalega vel og mun klárlega taka með mér þessa punkta sem þú gafst mér í framtíðina!
Mikael er einstakur þjálfari. Mikael er vinalegur og skemmtilegur þjálfari sem vill hjálpa þér að ná markmiðunum þínum. Staðinn að gefa bara program og segja þér að fylgja því, útskýrir hann hvernig við ætlum að ná markmiðunum og var alltaf til staðar ef eitthvað var óvist. Eftir bak meiðslin í maí fór ég til Mikaels í næringarþjálfun, ég var rúmliggjandi útaf bakverkjum þegar ég byrjaði í þjálfuninni. Þótt ég var bara í næringarþjálfun hjá Mikka ýtti hann mér að mæta á æfingu og hreyfa mig. Mikael er alvöru þjálfari og vill það besta handa fólkinu sem eru í þjálfun hjá honum
Mikael er frábær þjálfari hefur alveg sýnt það a þessum 3 mánuðum sem ég hef verið i þjálfun hjá honum. Hann svarar öllum spurningum vel og alltaf til í að hjálpa. Vikulegu check-inin hafa verið i ákveðnu uppáhaldi hjá mer þar sem hann fer vel yfir hvað honum fannst ganga vel og hvað hann vill sjá going forward. Það sem ég hef lært mest er hvernig er best að borða og stilla upp deginum. Annað sem mig langar að nefna er að hann kenndi mér á að horfa á jákvæðu hlutanna af vikunni og skoða meira hvað fór vel og hvar má bæta, í stað þess að taka einn neikvæðan hlut og nota hann til að “skemma” vikuna. Vikurnar mínar eru svolítið mikið wildcard svo ég er alltaf mjög þakklátur með að hann sé skilningsríkur þegar það var verri vika og hvetur mig áfram og hefur kennt mér að stefna á þá næstu og setja liðna viku til hliðar. Appið mjög flott inniheldur allar upplýsingar á flottan hátt.